Freyjutorg endurnýjun 2018 – Djúpgámar og dvalarsvæði
Verkið felst í megindráttum í endurnýjun svæðis á gatnamótum Freyjugötu, Bjargarstígs og Óðinsgötu.
Helstu verkþættir:
Jarðvinna og fullnaðarfrágangur djúpgáma, ný snjóbræðsla á gatnamótum ásamt hellululögn, gerð torgs með setbekk og endurnýjun gatnalýsingar ásamt lýsingar á torgi.
Verkkaupar:
Reykjavíkurborg og Veitur ohf.
Verklok:
September 2018
Eftirlit:
New Nordic Engineering ehf
Flokkur: Jarðvinna
Staða: Verki lokið
Önnur verkefni
Esjumelar Hringtorg – Undirgöng
Um er að ræða gerð hringtorgs á Hringvegi við Esjumela auk allra vega og stíga þar með talið undirgöng, strætóbiðstöðvar, gerð Víðinesvegur og Norðurgrafarvegar að Lækjarmel/Esjumel. Til verksins teljast einnig breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja, m.a. færsla rafstrengja með háspennu.
Verkkaupar:
Samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Veitna og Reykjavíkurborgar.
Verklok:
Vor 2019
Eftirlit:
Mannvit
Helstu magntölur:
Jarðvinna og vegagerð
- Rif malbiks og steypu 7.000 m2
- Bergskeringar 3.000 m3
- Ónothæfu efni ekið á losunarstað 12.000 m3
- Fyllingar í vegagerð 15.000 m3
- Fláafleygar 8.000 m3
- Ofanvatnsræsi 500 m
- Styrktarlag 10.000 m3
- Burðarlag 3.000 m3
- Malbik 17.000 m2
- Gangstígar 1.700 m2
- Reiðstígar 2.400 m2
- Vegrið 300 m
- Götulýsing, skurðgröftur og strengur 2.500 m
- Ljósastaurar 70 stk.
- Mótafletir 260 m2
- Járnalögn, slakbending 10.000 kg
- Steypa 80 m3
- Vatnsvarnarlag undir malbik 150 m²
- Sigplötur, einingar 20 stk.
- Forsteyptar einingar, 1 m á breidd 22 stk.
- Skurðir fyrir veitulagnir 3.200 m3
Þverbrekka 8, Kópavogi
Bygging og fullnaðarfrágangur á 12 íbúða fjölbýlishúsi ásamt bílastæðahúsi í Kópavogi.
Verkkaupi:
PK Byggingar ehf
Verklok:
Mars 2018
Eftirlit:
PK Byggingar ehf
Gagnaveita Reykjavíkur
PK Verk ehf hefur lagt ljósleiðarakefi inn í þúsundir heimila á höfuðborgarsvæðinu á síðastliðnum árum.
Verkkaupi:
Gagnaveita Reykjavíkur.
Austurkór 2
Bygging og fullnaðarfrágangur á 6 íbúða fjölbýlishúsi í Kópavogi.
Verkkaupi:
PK Byggingar ehf
Verklok:
Mars 2014
Eftirlit:
PK Byggingar ehf
Dreifistöðvar Veitna
Verk þetta fólst í byggingu tveggja dreifistöðva við Hlíðarenda nr. 6a og 14a.
Verkkaupar:
Veitur ohf. og Gagnaveita Reykjavíkur
Verklok:
04.05.2018
Eftirlit:
Hnit verkfræðistofa hf.
Urriðaholtsstræti 30, Garðabæ
Bygging og fullnaðarfrágangur á 13 íbúða fjölbýlishúsi ásamt bílastæðahúsi í Urriðaholti
Verkkaupi:
PK Byggingar ehf
Verklok:
Lok árs 2019
Eftirlit:
PK Byggingar ehf
Helstu magntölur:
Veggjamót 6.874 m2
Plötumót 2.341 m2
Bendistál 88.000 kg
Steinsteypa 1.100 m3
Lokahús vatnsveitu Miklubraut – Kringlumýrarbraut
Verkið fólst í því að leggja DN 600 ductile steypujárnspípu og ø280 PE plastpípu frá núverandi pípum við Kringlumýrarbraut, norðan Miklubrautar og að lokahúsi sunnan Miklubrautar. Einnig var lokahúsið steypt upp, lögð pípulögn úr ryðfríu stáli innanhús ásamt öðrum frágangi við húsið.
Verkkaupi:
Veitur ohf.
Verklok:
19.10.2016
Eftirlit:
Hnit verkfræðistofa hf.
Helstu magntölur:
Skurðgröftur 150 m
Vatnsveitulögn DN 600 ductil 150 m
Vatnsveitulögn ø280 PE 150 m
Ídráttarrör fyrir stýristreng ø50 PE 150 m
Ídráttarrör fyrir rafmagn, þverun Miklubrautar 450 m
Steypt lokahús 35 m2 (140 m3) 1 stk
Lagnir í lokahúsi 2000 kg